Forsíða /
Um Kviku eignastýringu /
Sjálfbærni

Sjálfbærni

Kvika eignastýring leggur áherslu á langtímahugsun og jákvæð langtímaáhrif á samfélagið. Félagið trúir því að sjálfbær rekstur fyrirtækja og sjóða sé líklegri til að viðhalda góðri rekstrarafkomu til framtíðar.

Ábyrgar fjárfestingar

Með ábyrgum fjárfestingum er átt við að tekið sé mið af umhverfislegum þáttum, félagslegum þáttum og stjórnarháttum (UFS, e. ESG) í fjárfestingarráðgjöf og við fjárfestingarákvarðanir með það að markmiði að draga úr áhættu og skila sjálfbærri ávöxtun til langs tíma.

Kvika eignastýring leggur áherslu á langtímahugsun og jákvæð langtímaáhrif á samfélagið og trúir því að sjálfbær rekstur fyrirtækja og sjóða sé líklegri til að viðhalda góðri rekstrarafkomu til framtíðar.  

Til að framfylgja þessum gildum hefur Kvika eignastýring sett sér stefnu um ábyrgar fjárfestingar en þar er kveðið á um hvernig félagið tekur tillit til UFS þáttanna að því marki sem rúmast innan fjárfestingarmarkmiða Kviku eignastýringar.  

Stefna um ábyrgar fjárfestingar

Stefnan tekur mið af meginreglum alþjóðlegu samtakanna Principles for Responsible Investment (PRI) sem samstæða Kviku banka er aðili að síðan árið 2020.

Í samræmi við stefnu Kviku eignastýringar um ábyrgar fjárfestingar hafa framtakssjóðir félagsins lagt áherslu á að styðja stjórnendur með markvissum hætti í að bæta rekstur og árangur félaga sem fjárfest er í með langtímaávöxtun og sjálfbærni að leiðarljósi. Hvatt er til að sýna samfélagslega ábyrgð í verki og tileinka sér góða viðskipta- og stjórnarhætti, sem og gæta að fjölbreytni og huga að umhverfismálum. Sérstök sjálfbærniskýrsla framtakssjóða Kviku eignastýringar hefur verið gefin út árlega til fjárfesta í sjóðunum en þar eru meðal annars gerð skil á frammistöðu sjóðanna með tilliti til ákveðinna UFS þátta.

Frekari upplýsingar um sjálfbærni

Kvika eignastýring er hluti af samstæðu Kviku en innan samstæðunnar er starfað eftir sömu áherslum hvað varðar sjálfbærni. Þá fer almenn sjálfbærniupplýsingagjöf að jafnaði fram á samstæðugrundvelli og birtast upplýsingar um sjálfbærnivinnu og áfanga Kviku eignastýringar meðal annars í árlegri sjálfbærniskýrslu Kviku, ársreikningi Kviku eignastýringar, stjórnarháttayfirlýsingu félagsins og samstæðureikningi Kviku banka.